Bloggsvæði hreppatuskunnar

velkomin á vígstöðvar hreppatuskunnar

04.10.2007 20:30:21 / heiða

þetta er drasl....

....og ég nenni þessu ekki lengur, ég er flutt nýtt heimilisfang er hreppatuskan.bloggar.is verið velkomin

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 11:47:53 / heiða

...

Vá hvað ég nenni ekki að blogga, finnst ég ekki hafa neitt að segja. En það var samt ógeðslega gaman í afmælinu hjá bjössa frænda, Grettisromjan toppaði það alveg og líka að hitta Auði frænku.En ég er svona farin að velta því meira og meira fyrir mér að breyta síðunni minni og færa mig yfir á bloggar.is svæðið, það virðist einhvern veginn vera minna vesen að hafa hlutina þar eins og þeir eiga að vera t.d. að koma inn myndum og sonna. Annars ætla ég að setja hér inn niðurstöður úr skoðanarkönnunninni (já þetta eru rosalega mörg n) 

 

hver er aumasta leið til að "dömpa" einhverjum


með sms  14%
með tölvupósti
 0%


senda vin/vinkonu með skilaboð (eins og maður gerði í 5. bekk) 14%
skrifa bréf
 0%
leifa viðkomandi að lesa það á blogginu sínu
 71%

Fjöldi atkvæða:14
 

and we have a winner, and you are rediculus, farbiond rediculus

HAHAHAHAHAHAHA


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 12:50:48 / heiða

.....

Jæja ætli sé ekki best að fara koma einhverju vitrænu hér inn svo að fólk geti hætt að hafa áhyggjur af því að maður sé að gefa sig á vald myrkurs og drunga, þetta var svo sem ekki alvarleg svartsýni bara einn af þessum dögum. En annars var geggjað gaman um síðustu helgi, því á föstudagskvöldið buðu þau í afmæli Ingimar og Karen, svona fullorðins ammli. Það var svona matur og alles, voða gaman og eftir mat sátum við bara og kjöftuðum og alltí einu segir ein stelpa þarna “kann einhver svæsinn klámbrandara eða klámvísu”?? og það litu allir á MIG!!!!!!   Sem var kannski ekki nema von því að svo kom ég með eina klámvísu hehehehe

Ef vantar smokk í guddu-gjá,

í greddu sóttarkasti.

Ríðingunum redda má,

með rúllubaggaplasti

Og eftir það flugu brandarar þvers og kruss, og svo fór svona einn og einn að tínast úr hópnum og fara heim að lulla en við partýljónin héldum áfram og enduðum niður á vélsmiðju og það næsta sem ég man er að ég vaknaði heima hjá mér. Ég held þetta sé alveg orðin spurning um að fara hætta að drekka.En hey svo kemur ný könnun núna endilega kjósið, mér leikur mikil forvitni á að vita ykkar skoðun hehehe


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 17:43:44 / heiða

sunday, bloddy sunday

Ohhh ef þessi ferfættlingur hún freyja er ekki eitthvert það almestakrútt sem fyrir finnst á þessari jörð þá veit ég ekki hvað. Æi, gærdagurinn bar eiginlega nafn með renntu, sonday bloddy sonday. Ekki nóg með að þetta sé titillinn á uppáhaldslaginu mínu með uppáhaldshljómsveitinni minni heldur var þetta bara frekar crappy dagur í heild, og í einu örvæntingarkastinu mínu á rúntinum þá kom þetta lag í útvarpinu. Já það rann kannski tár eða tvö í gær, a wrethet shitti day, og ef að freyja heirði að ekki var alltí lagi hjá mér þá kom hún alltaf til mín og lagði hausinn í kjöltu mína á starði á mig með fallegu brúnu augunum sínum til að fullvissa mig um að þetta myndi nú allt saman lagst fyrr eða síðar. Svo var ég að horfa á desperet housewives í tölvunni minni og þar kemur stundum fyrir að þær skæla og í eitt skiptið kom freyja til mín og lagði hausinn sinn í kjöltu mína og starði á mig með stóru brúnuaugunum sínum, what more can you ask fore then a friend like that. Annars er ég að myndast við að reyna að gera einhverskonar my space síðu, ég kannski læt ykkur vita adressuna þegar hún er orðin þannig að það sé eitthvað gaman að skoða.

En ætli ég fari ekki að halda áfram að horfa á eiginkonurnar, þessar aðþrengdu

by the way, takk krissa og arnór, you wrealy make a differens


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 17:41:18 / heiða

jibbíííí, nú kemur fullt af bloggi

Ég veit það trúir því ekki nokkur maður að ég hafi ekki bloggað svona lengi gegn mínum vilja en það er nú samt satt, ég reyndi hvað eftir annað að setja inn færslur af allskyns tagi en ekkert skeði en svo sá ég í morgun að blogcentral-svæðið væri lokað vegna viðgerða svo að þá fór nú að liftast brúnin á minni. En jæja ég fór í göngur, fann kindur og kom þeim heim þannig að þá held ég að takmarkinu hafi verið náð hehe. Reyndar tókst mér að tínast í þoku (sem reyndar enginn annar sá nema ég) æi ég fékk svo rosalega mikið ský fyrir augun þannig að það var eins og ég væri í svarta, svarta þoku, ég sá handa minna skil en ekki mikið meira en það, ég sá ekki mennina sitthvoru megin við mig. Þarna voru engin kennileiti til að fara eftir því við vorum lengst uppá heiði þar sem loftlínan var allstaðar sú sama, en ég hafði séð á eftir pabba í vestur og reyndi að stíma nokkurnveginn í þá áttina en áður en ég vissi af var ég gersamlega ein í heiminum, ráfaði um í svarta þoku og hrópaði “hó, hó” í þeirri vona að einhver myndi heira í mér hvort sem það yrði fólk eða fénaður. En svo kom hetjan hann pabbi og bjargaði litlu stelpunni sinni. Já allt er gott sem endar vel.Svo var réttað föstudaginn 7. sept. og laugardaginn 8. sept. og á sunnudeginum vorum við að hjálpa þeim í Forsæludal að gefa lömbunum sem voru komin heim, svona drullutöflu. Og á mánudaginn fórum við pabbi ásamt 3 öðrum að smala Bótina, en það er svæði þarna innst í dalnum og það er ekki auðveldara að smala það eða Haukagilsheiðina, eitt forarsvað sem heldur ekki hundi hvað þá öðru.En svo komum við heim á þri. 11. og ég fór í vinnuna í 2 daga en þau fóru aftur vestur í vatnsdalinn að hjálpa kunningja sínum sem er með hestaferðir þarna, já mamma fór til að eitra fyrir þeim og pabbi reyndi að villa um fyrir þeim. Ég skrapp vestur á fimmtudaginn og kom aftur á föstudaginn bar aðeins til að hjálpa mömmu með það mesta en afþví að ég þrufti að vinna um helgina að þá gat ég ekki verið allann tímann, en svo var ég bara veik þannig að ég var bara hér heima með henni freyju minni alla helgina.  

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 17:03:56 / heiða

jæja....

...skildi þessi síðu skratti vera komin í lag, við skulum sjá

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 13:00:20 / heiða

á leið í smölun til 10. sept

Jæja þá er kellan á leið í göngur, jább, draumurinn er að rætast VÍÍÍÍÍÍÍÍ. Þannig að ef að þið heirið í fréttum að þyrla og björgunarsveitarmenn hafi verið kallaðir út til að leita að gangnamanni þá vitið þig hvernig hefur gengið hehe.Annars er bara meinhæft að frétta, fór með Hemma, Lindu, Ingimari og Karen á skrallið á laugardagskvöld, fórum á Vélsmiðjuna eftir að hafa spilað partý-spilið í ca 2 klst. Og samt náði ég ekki að klára hringinn því að ég var alltaf að lenda á kránni :/ og mig minnir að ég hafi skemmt mér vel þrátt fyrir að hafa ekki farið eitt einasta skipti á barinn allavegna rámar mig óljóst í það að á heimleiðinni, þegar við vorum að ganga upp strandgötuna að þá stoppuðum við og vorum eitthvað að kjafta og Ingimar var að segja eitthvað alveg hreint drep fyndið (að mér fannst) og ég bókstaflega hékk á einhverri girðingu, rétt um það bil að pissa á mig af hlátri, en að ég muni hvað það var sem var svona fyndið, neeeeei. Og þegar ég vaknaði um morgunin (já ég actualy vaknaði fyrir hádegi) þá mundi ég ekkert hvar ég var eða hvernig ég komst þangað en þegar ég reis upp sá ég að ég hafði sofið í öllum fötunum í rúminu hennar Sylvíu. Já það er gott að eiga góða vini sem hugsa fyrir mann hehe.En þangað til næst bið ég að heilsa Tata.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 21:47:24 / heiða

já, góða kvöldið elsa heiti ég, er haraldur heima

BWAHAHAHAHAHAHAHA :haha::haha::haha:  pabbi gamli var að lenda í gallup könnun   “....en áður en við byrjum þá ber mér að segja að fólki er hvorki skylt að svara spurningar listanum í heild né einstökum spurningum.....” :D æi í gömlu góðu daga  hahahaha

Og að lokum koma nokkrar spurningar sem notaðar verða við úrvinnslu könnunnarinnar

Hverstu margi að þér meðtöldum/taldri búa á heimilinu??

Og hversu margir þeirra eru undir 18 ára aldri??

Og næst koma spurningar um tekjur heimilisins .............:klikk:bwahahahahahaha


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 21:17:51 / heiða

litlu hlutirnir gera gæfu muninn

Það var svo dásamleg stund í vinnunni í dag þegar ég var að fara heim. Þannig var að í morgun áður en ég fór í vinnuna þá kom ég við hjá þeim pa & ma og náði í 2 video spólur til að haf með mér uppá Hlíð og leifa fólkinu þar að horfa á. Önnur þeirra er upptaka úr sjónvarpinu frá því að leikritið Þrek og tár var sýnt fyrir guðmávitahvað mörgum árum síðan og hitt var reyndar líka tekið uppúr TV en það er íslensk mynd sem heitir hestasaga og er um fyrsta árið í lífi folalds. Og þarna á deildinni minni er einn gamall hestakall sem er það illa á sig komin líkamlega að hann fer aldrei útúr herberginu sínu nem aí undantekningum og svo setti ég Hestasögu í videoið hans en leikritið setti ég í tækið í setustofunni fyrir allt hitt fólkið. Þetta leikrit er gaman leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson og fjallar um fjölskyldu í vesturbænum í kringum 1960 og það er svo fullt af skemmtilegum dægurlögum og þetta er svo skemmtilegt og vel skrifað að það var alveg dásamlegt að fylgjast með öllu fólkinuskemmta sér svona vel yfir þessu. Ég held að ég hafi aldrei séð jafn marga sitja þarna í stofunni í einu. Meira að segja fólk sem helst vill bara vera inni hjá sér í herberginu sínu og horfa á sitt sjónvarp sat þarna frammi og hló meðöllum hinum, þetta var alveg dásamlegt að geta glatt svona marga og maður verður að reyna að muna að það þarf ekki alltaf mikið til. Það var notalegt að fara úr vinnunni með þessa mynd í huganum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 21:35:42 / heiða

segið svo að ég fari aldrei krókaleið að hlutunum

Þannig er mál með vexti að ég frétti af íbúð hér á akureyri sem er dálítið stærri en sú sem ég er í núna (enda hef ég séð stærri kartöflugeymslur en þetta) og málið er að stelpa sem ég er að vinna með býr í sama húsi og þessi íbúð er í og sagði að hún væri búin að standa auð í þónokkurn tíma og sagðist hafa á tilfinningunni að hún hefði ekki verið leigð fyrir svo mikið þannig að hún bauðst til þess að finna konuna sem á þessa íbúð og láta mig hafa númerið hjá henni. Nokkrum dögum seinna kemur hún til mín og tilkinnir mér að hún viti hvað gellan er “já, hún hlýtur að vera í rússnesku-mafíunni, því það er gersamlega útilokað að finna hana, það eina sem ég veit er að hún heitir Ásta að fyrra, eða seinna nafni og meira veit ég ekki”. Þannig að nú voru góð ráð dýr. En ég er nú ekki þekkt fyrir að deyja ráðalaus (það held ég að sé aumur dauðdagi, grotna niður við það að klóra sér í hausnum) en ég hafði bara samband við akureyrarbæ og sagði “ég þarf nauðsynlega að hafa uppá manneskju sem á íbúð í Norðurgötu 3 en hún býr samt ekki þar, ég held hún heiti Ásta annað hvort að fyrra eða seinna nafni” og viti menn mér var gefið heimilisfang og fullt nafn og konunni sem er skráður eigandi að íbúð í Norðurgötu 3. Svo að nú var lítið mál að fara bara inná ja.is (guði sé lof fyrir internetið;) og fá hjá henni símanúmerið svo að á morgun ætla ég bara að hringja í kellu. “uuuuuuu, hurru, ég var að spá hvort að þú ættir nokkuð íbúð sem þig langar til að leigja mér??..........ekki það, nei nei alltílagi, bara tjekka”


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 20:10:42 / heiða

viðrini með útvarpshaus---I want you to notice when I'm not around

Ég held að það viti það nú flestir sem þekkja mig eitthvað ættu nú að vita hvað ég get verið hriyllilega stífluð, ég veit vel hvað það er pirrandi að þurfa draga hluti uppúr fólki en ég er ekkert að biðja um það, þarf bara minn tíma til að ulla orðunum útúr mér en það er alltí áttina, þetta var alveg helljarinnar afrek hjá mér að koma þessu frá mér, það kannski finnst þetta eingum merkilegt en fyrir mér var þetta ekki ómerkilegra heldur en það að ég sat í sófanum heima hjá þeim pa & ma á meðan tárin runnu í stríðum straumum og hvert einasta smá skref skiptir máli. Annars var þetta smá skref meira eins og heljarstökk  fyrir mig

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 21:41:46 / heiða

...

Þrátt fyrir færsluna hér á undan er ég ótrúlega spennt og full tilhlökkunar því að ég var að fá það staðfest í dag að ég er að fara með pabba í göngur vestur í Vatnsdal á Haukagils- og Grímstunguheiði í næstu viku. Við sem sagt förum á þriðjudag og svo er réttað á föstudag og laugardag og svo er líka smá smölun á mánudeginum, svo að það er þokkalega bissy vika framundan hjá mér núna, því þegar ég verð búin með 10. vaktina í röð á elliheimilinu förum við beint vestur í vikur göngur eða svo :D it’s a dream com true

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 21:35:28 / heiða

hmmm

Hvernig í fjandanum stendur á því að það virkar bara í bíó myndum að fylgja hjartanu, það er einhvernveginn eins og það virki bara í bíómyndum eða hjá öllum hinum.............og þar með er ég strand.

Mig langar svo mikið að breytast svo mikið, skrifa af virkilegri hreinskilni um það sem er að brjótast um í mér, en af einhverjum ástæðum stranda ég alltaf á fyrstu 2 línunum og bara þessar línur hér ...........ég gæti aldrei sagt þær upphátt því kökkurinn í hálsinum myndi kæfa þær.

Ég ætlaði að fara skrifa “ég vona að fólk fari ekki að halda að ég sé að hrinja í eitthvað þunglyndi....bla bla bla” en ég ætla ekki að fara velta mér uppúr því sem öðrum finnst þeir verða bara að eiga það við sjálfa sig  hvað þeim finnst um mig og ætla þess vegna ekki að fara velta mér uppúr þeirra skoðunum og áliti eins og fiskur í raspi, held ég hljóti að vera búinn með þann kvóta og sennilega komin tími til að vera í alvörunni hreinskilin og þá sérstaklega við mig sjálfa, en eins og góður maður sagði einu sinni......það er erfiðara en maður heldur. Þá er bara spurning hvort ég hafi kjark til að setja þetta inn.........

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 22:55:51 / heiða

jæja ég var víst búin að lofa....

 .....lofa því að koma með fleiri sögur af Reyðarfirði síðan um daginn því þetta crew kemur aldrei saman öðruvísi en að það komi saga, og 2 frekar en ein.En við sem sagt komum austur á Reyðarfj. á föstudag og borðuðum kvöldmat og sollis hjá þeim hjúum en svo var búið um alla grísina útí bílskúr þ.e.a.s. krakkarnir hans Adda bróður, krakkarnir hennar Þuru (nema fermingarbarnið;) og svo yngsta stelpan hennar Steinnunar (mágkona þuru). Svo eru þau að hátta gömlu hjúin þegar pabbi fattar að hann hafði gleymt gleraugunum sínum heima á akureyri og mamma bíðst til þess að sækja sín útí bíl, nema að hún var nýbúin að klæða sig úr að ofan og fannst engin ástæða til að klæða sig í aftur þó hún skrippi aðeins útí bíl, svo að gellan bara æddi út, berfætt á inniskóm og á brjóstarhaldaranum. Hún gengur að bílnum og opnar bílstjóramegin og er að teygja sig í hanskahólfið þegar hún rekur sig í takka á fjarstýringunni og þar með var fjandinn laus!!!!!! DING DING DING DING DING, BAAOOW BAAOOW BAAOOW, VÍÍÍÚÚÚÚ VÍÍÍÚÚÚ VÍÍÍÚÚÚ, KLING KLING KLING, BÍBÍBÍBÍ BÍBÍBÍ BÍBÍBÍ. Það var sko öll heila simfónían sem var spiluð, ég vissi ekki einu sinni að bíllinn væri svona fjölhæfur músikant. Og ekki nóg með að hafa dregið að sér alla þá athygli sem hægt er með þessum látum þá er frekar fjölfarin göngustígur þarna við húsið og þar var par að labba og maðurinn flautaði á mömmu (þið vitið þetta klassíska “flaut flauuuut”) á meðan konan hans tók á öllu sínu til að brjálast ekki úr hlátri. Ekki nóg með að sonur þessa pars sé í bekk með fermingar barninu heldur var konan að syngja við athöfnina með kirkjukórnum daginn eftir og gott ef að maðurinn er ekki kennari stelpnanna. Segið svo að maður kunni ekki að vekja á sér athygli hehehe.En þetta er ekki besti brandari þessarrar helgar, ónei hann Snjólfur Björgvinsson fór gersamlega hreint á kostum. En afþví að þessi ferming var á þessum árstíma að þá var Arnbjörg auðvitað ein og þessvegna var ræðan hjá prestinum (sem var alveg frábær) mjög persónuleg og t.d. þegar hann sagði “Arnbjörg mín, þú mátt aldrei gleyma hvað þú ert merkileg manneskja í þessu samfélagi og hversu mikilvæg manneskja þú ert okkur öllum” þá snéri stubburinn sér að foreldrunum og sagði stundarhátt “HAAA, er Abbögg manneskja??” er nema von að barnið spyrji hehe. Og svo var gengið til altaris, foreldrar, systkini afar og ömmur og þeir sem ekki eru þegar fermdir fá ekki blóð krists heldur leggur presturinn hendina yfir þau og blessar. Stubburinn var ekki alveg parsáttur með það og vildi ekki vera minni maður en hinir og heimtaði blóð krists, hann s.s. elti prestinn inná skrifstofuna sína og bað í sinni barnslegu einlægni með uppglentum hvolpaaugum um “blóð krists” ég held að þetta sé eina barnið sem maður talar um sem hræðilega vel gefið og skarpt. Og svo þegar var hringt út úr kirkjunni að athöfn lokinni þá sveiflaði hann hausnum í takt og söng með “ding doong, ding doong” hehehehe. Jæja þetta er orðið ágætt í bili, er að fara vinna kl 8 í fyrramálið og hef ekki verið nógu dugleg að sofa alminnilega undanfarnar nætur, er bara núna að krossa fingur og biðja til guðs um að fá að fara í göngur og réttir vestur í vatnsdal, þó svo að það hafi ekki farið vel í fyrra þá vitum við alveg hversvegna það var og mistökin eru til að læra af þeim

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 12:29:51 / heiða

sannleikurinn um stjjörnumerkin


áður en ég kem með fleiri sögur af Reyðarfirðinum (og trúið mér það eru sögur þaðan hehe) að þá ætla ég að leiða ykkur í harðann og kaldan sannleika um stjörnumerkin. Njótið.
Sauður.... æi..ég meinti "tignarlegur" hrútur.
Sauðsháttur er ekki til í eðli hrútsins (skoðið fiskana frekar)..en stífni er..
Sauður segir bíddu en hrútur segir bakkaðu... og það er sko eins gott fyrir þig .. þessi horn skapa sársauka! !
Allir Hrútar eru frekir og vita allt, og þeir búta allt niður í línur... stapp, stapp, traðka, traðka, æða áfram.
Þeir eru sko fyrstir, einmitt, færðu þig bara og vertu svo ekki fyrir mér, okay?
Hrútnum er stjórnað af Mars , guði þeirra sem segja " Ég vinn, þú tapar".
hrútar sem ég þekki eru:
Auður frænka, Hjölli vinur minn, Óli frændi, Hekla Rán, Gígja Björg
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nautsmerkið er belja... sorry...ég meina naut "gripur"...
Kýrnar gefa mjólk, en nautin geta ekkert annað en fnæst með logandi nasir og borað hornunum í þig...
Þeir taka allt sem þeir vilja, hvenær sem þeir vilja það - matinn þinn, uppáhalds stólinn þinn, tímann þinn, orkuna þína, peningana þína, allir þínir hlutir - það er allt þeirra..
Þeir stara í gegnum lífið, eta allt sem verður á þeirra leið.. Sjálfselskir..
Nautinu stjórnar Venus - gyðja efnis og peninga.
naut sem ég þekki:
Ég, Hemmi, Sigga Sveins, Sædís, Gedda, Zak Valur
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Tvíburinn er geðklofi.. - nei bara tvennt af því sama....
Getur ekki haldið sig við sömu stellinga meira en mínútu... og þeir ljúga..
Hverflyndur, ístöðulaus, og algjörlega klikkaður ...úbs..
Farðu ekki út með tvíbura nema að þú viljir missa vitið...
Hann elskar mig, elskar mig ekki, hún elskar mig, hún elskar mig ekki.
Þú munt aldrei vita raunverulegt svar..
Tvíburanum er stjórnað af Merkúr- guði hugarflugs..
tvíburar sem ég þekki:
Klara frænka, Begga vinkona,
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Krabbinn er "bara" krabbi...
Það er bara svoleiðis...
Tík, kveina,kvarta, hrekkja,eilif fyrirtíðarspenna - hvort sem krabbinn er karl-eða kvenkyns...
Af og til, þegar tunglið er í réttri stöðu, þá verður krabbinn snaróður brjálæðingur ...
Það er í eina skiftið sem þú losnar undan þeirra óþolandi væli...
Ekkert er nógu gott, enginn hjálpar þeim nóg, þú borðar ekki nóg..bla, bla, bla.
Það er engin leið að gera þeim til hæfis
Eina lausnin er að setja þá í pott og sjóða þá...
Krabbanum er stjórnað af draugalegum Mána - og villtum miskunnarlausum sjávarföllunum......
krabbar sem ég þekki:
Halldór Pétur, Ingimar Víglunds,
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ljónið er "bara" skepna...ja að vísu konungleg skepna...
Ljónið sprangar um eins og herra eða frú fullkominn... eins og kötturinn þinn...
Ég meina líttu á köttinn þinn - til hvers er hann eiginlega?
Mataðu mig, er ekki hárið á mér flott...ég sagði er ekki hárið á mér flott??
Er ég ekki fullkomin/n? Klappaðu mér, dáðstu að mér, leiktu við mig- farðu núna í burtu"- kvæs. klór... púff..
Þeir gera ekki brellur, þeir gera ekki það sem þú segir þeim að gera og þeir útdeila engu....
Þá er það upptalið..
Ljóninu er stjórnað af Sólinni - Hr. Geisla sjálfum..
ljón sem ég þekki:
Árni bróðir, Erla Dögg, Anton Orri, Emilía Brá, Hrafntinna Nótt
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Virgo er meyja. Meyjur eru ekki skemmtilegar.. soo sorry
Þær eru tandurhreinar, of hreinar og mjög vandlátar....
Enginn og ekkert er nógu gott fyrir meyjuna..
Þær stara á þig með nístandi augnaráði, skrá niður minnispunkta í huganum um alla þína veikleika og galla.. !dodge
Þær þykjast vera vinur þinn og vilja hjálpa þér, pískrandi og hlægjandi að þér á meðan..
Treystu þeim ekki eina mínútu!
Meyjunni er stjórnaða af Merkúr - guði "ofur" eitthvað... greininga....
meyjur sem ég þekki:
Bjössi og Janette, mamma, Arnbjörg Helga, Björgvin mágur, Karen Ósk
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Vogin er par af vogarskálum- algjörlega úr jafnvægi...
Þær halda áfram að reyna að gera rétt, en gera það samt aldrei...
Þær bæta smá á þessa hliðina, smávegis á hina, þar til þær eru svo uppfullar af dóti
að þær verða að halda bílsskúrssölu.. En auðvitað munu þær ekki gera það ...
Þær vilja líka alltaf meira og meira ... meiri ást, fleiri skartgripi, meira fjör, meiri peninga,
meiri fegurð, fleiri vini, bla, bla,bla,...
Voginni er stjórnað af Venus - gyðju tonns af dóti og góðgæti.
vogir sem ég þekki:
Linda Rós, Guðlaug frænka, Ingimar Skjól,
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Sporðdrekinn er viðbjóðslegur, stingandi illkvittinn óþokki, undirförul og dulúðug ógnvekjandi sköpun myrkursins...
Treystu ALDREI Sporðdreka.....
Sporðdrekar treysta þér ekki, og þeir drepa þig á einum hjartslætti.
Ef að þú ferð rétt að þeim, gæti verið að þeir yrðu góð gæludýr - auðvitað í viðeigandi búri.
Sporðdrekinn skríður um ósýnilegur, grefur sig inn í þínar leyndustu hugsanir og drauma
og stelur þeim sem þjófur að nóttu ... Það er skelfilegt!!
Sporðdrekanum er stjórnað af Pluto - guði kjarnorkusprengingarinnar...
sporðdrekar sem ég þekki:
pabbi, Krissa vinkona, Höski bróðir, Adda vinkona og Bjössi
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Bogmaðurinn er þöngulhaus, þrammandi, hneggjandi hross.....
Vertu ekki í vegi fyrir þeim..þeir hlaupa á.. Flestir Bogmenn eru eins og hross sem er með hlífar á augunum... Þeir geta ekki séð til hliðanna og vita þessvegna ekki hvað þeir hlaupa á....
Þeir segja líka alltaf röngu hlutina, eins og.." hæ - þú ert miklu ellilegri og feitari núna,en síðast þegar ég sá þig". Eða... hvað kom fyrir andlitið á þér ??????
Þetta er ekki heiðarleiki , þetta er hreinn og klár dónaskapur ...
Bogmanninum er stjórnað af Jupiter, frumeintaki af Hr. ég veit allt....
bogamenn sem ég þekki:
Addi bróðir, Elmar Freyr, Arnór, Uncle Benz
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Steingeitin er - geit...bara ilkvittinn geit.. eða geit"ungur"..
Sú tegund sem lítur út eins og gamall nautnaseggur ( eins gott að D.O. sjái ekki þetta )..........
Þær komast örugglega á fjallstoppinn, með öllum tilteknum brögðum sem þær kunna!
Svo hafa þær hringuð horn eins og Djöfullinn ...
Steingeitin mun nota þig og misnota á allan hátt til að ná sínu takmarki
Þeim er sama þó að þær þurfi að eta rusl, eða að það taki óratíma að ná takmarkinu.. en þær ná því....
Steingeitinni er stjórnað af Saturnus - faðir tímans, þessum með orf og ljá.
steingeitur sem ég þekki:
Þura systir, Víkingur Leo, Inga (mamma krissu), Sylvía Rós, Steinunn Þórarins
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Fiskurinn er fiskur..eða bara þorskur á þurru ..
Ja reyndar tveir fiskar sem synda í sitthvora áttina - alltaf vegvilltir, svona lost...
Fiskarnir lifa í stöðugum ótta því að þeir vita ekki hvaða hættulega fiskiæta liggur í leyni... allstaðar....
Sjáðu bara hvað þeir æða um, ruglaðir og áttavilltir..
Fiskar geta ekki haldið sig á sama stað í tvær sekúndur, ef þú hendir bragðgóðri beitu út í ..pomm.
Í einum hvelli er fiskurinn kominn til þess að gleypa krókinn..
Auðveld bráð þessir fiskar.. (á vissan hátt eins og sauðurinn )
Fiskurinn stjórnast af Neptunus - guði friðar, ástar og rýmis
fiskar sem ég þekki:
Urður Eir, Signý Björk, Steinunn Dagmar
------------------------------------------------------------------------------------------------------

Vatnsberinn er villtur, geimkadett, vatnsbera strákur /stelpa.
Vatnsberar eru gjörsamlega ábyrgðarlausir.....
Þeir hafa eina reglu.. ef það er gott, gerðu það...
Vetnsberar gera margbrotnar snjallar áætlanir, svo rústa þeir þeim án þess að hugsa sig tvisvar um..
Þeir segja þér einn hlut, og svo láta þeir einhverja brjálæðislega hugmynd teyma sig til Timbúktú...
en þú teymir þá ekki neitt... Meðan þeir fara og "bjarga" heiminum..þá getur verið að fjölskyldan "týnist"
Reyndu ekki einu sinni að halda í Vatnsbera, þeir eru hálir sem áll, bara geðveikt fólk....
Vatnsberanum er stjórnað af Uranus - guði eldinga, rafmagns
vatnsberar sem ég þekki
Sunna meri, Snjólfur litli frændi, Baddi Ring, Finnur artman, Siggi hennar Klöru, Gunni frændi
------------------------------------------------------------------------------------------------------

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
hversu vel þekkiru mig
Dagsetning
10. mars 2010
Leitarbox

Klukkan